First Glimpse   (Ag)

With Veronika Geiger at Ásmundarsalur 2023




Two artists have been developing a site-specific project, guided by the space itself and the scene outside. The images exhibited in the café capture the view from Gryfjan showing Freyjugata as it appears in the Icelandic June light, created by turning the room into a camera obscura. Simultaneously the room is transformed into a darkroom, the images processed inside the camera. The visual language emerging from it is soft and abstract, allowing a glimpse into the world of what photography is and where it comes from.
Revisiting the main elements of the medium, by building our own room-sized camera we have been drawing with the light as its rays enter the darkened room through a small hole for a specific amount of time. The paper, embedded with silver halides, captures inverted morsels of light, allowing us to see the world outside more intensely as it silently falls on the white wall of the room. Upside-down and muted.
We invite you to wonder with us and experience the basics of photography which transformed our world.
 


Tvær listakonur hafa þróað staðbundið listaverk í Ásmundarsal, leiddar áfram af rýminu sjálfu og umhverfi þess. Myndirnar sem eru til sýnis á kaffihúsinu fanga útsýnið úr Gryfjunni í átt að Freyjugötu í júníbirtunni, skapaðar með því að breyta henni í camera obscura. Með því að framkalla myndirnar teknar með rýminu inni í því sjálfu, fær það einnig hlutverk myrkraherbergis. Hið sjónræna tungumál sem sprettur úr vinnuferlinu er mjúkt og abstrakt og veitir innsýn í heim ljósmyndunar og hvaðan hún kemur.
Með því að umbreyta herbergi í myndavél í yfirstærð leitum við aftur í grunnþætti miðilsins, teiknum með ljósi sem fellur inn í myrkvað herbergið í gegnum lítið gat í vissan tíma. Pappírinn, þakinn lagi af silfursöltum, fangar ljósagnirnar í negatífri mynd og gerir okkur kleift að sjá heiminn fyrir utan nánar er hann fellur hljóðlaust á hvítan vegg herbergisins. Á hvolfi og dálítið daufari en við erum vön.
Fólki býðst að stíga inn í veröld ljósmyndarinnar og velta fyrir sér uppruna hennar og hvernig hún breytti heimi okkar.